Daglegt háfjallalíf

Namaste, Hér í town base camp gengur allt sinn vana gang. Svona fyrstu dagana snýst lífið um að borða, drekka og hvílast. Það er því lítil hreyfing á okkur núna og markmiðiðað aðlagast vel. Maður veit að maður er á réttri leið þegar maður nær að sofa án vandkvæða. Hér hefur snjóað mikið síðustu daga og því var puja blessunarathöfninni okkar var frestað. Samkvæmt hefðinni fer enginn í gegnum ísfallið nema að fá blessun fyrst.Það er líka æskilegt að athöfnin fari fram á ákveðnum dögum og samkvæmt dagatalinu þykir morgundagurinn góður…en það spáir aftur snjókomu svo við krossum fingur. Í lok athafnarinnar eru bænaflöggin reist en það er mjög tignarleg athöfn. Daginn þar á eftir æfum við okkur í skriðjöklinum. Gædarnir vilja sjá hvaða hæfni og þekkingu við búum yfir. Áður en við förum yfir ísfallið munum við svo fara aðeins upp í það til þess að fá tilfinninguna fyrir því, mér persónulega þykir það mikilsvirði. Highlight dagsins var að fá sturtuna í gang…það kemur ekki að mér fyrr en á morg en get með sanni sagt að hún er bæði langþráð og vel þegin. Sendi svo snapp og myndir á instagram á morgun ef allt gengur eftir.

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *