Fórnir eða forgangsröðun ?
Meistaramánuður er að byrja ! Það er ekki seinna vænna en að skrá sig til leiks og lifa eins og meistari í heilan mánuð. Reyndar ættu allir mánuðir að vera meistaramánuður því ef við temjum okkur heilbrigðan lífsstíl líður okkur einfaldlega betur. En Meistaramánuður er frábært tæki til þess að koma hlutum í verk sem við höfum lengi hugsað um og hafa setið á hakanum.
Þegar við setjum okkur markmið verðum við eindaldlega einbeittari og við erum tilbúin til þess að leggja meira á okkur til þess að komast að lokatakmarkinu. Markmið eru stefnumótandi og hjálpa okkur að ná lengra. Eins er mikilvægt að hafa í huga að ef markmiðin eru stór að þá er gott að brjóta þau niður í smærri einingar sem varða leiðina, þannig erum við alltaf með viðráðanleg markmið í augnsýn og getum fagnað í hvert einasta skipti sem við náum þeim. Það er einfaldlega þannig að ef við fögnum nógu mörgum smásigrum að þá fögnum við á endanum þeim stóra !
Ég er stundum spurð að því hvort ég hafi ekki þurft að fórna ýmsu til þess að ná mínum markmiðum. Jú vissulega en samt eiginlega ekki ! Þetta snýst nefnilega um forgangsröðun. Þegar maður setur sér markmið verður maður að forgangsraða til þess að hámarka líkurnar á því að ná settu marki. Ég held rútínu, stunda æfingar, afla mér þekkingar á viðfangsefnunum o.s.frv. Tímastjórnun er líka gríðarlega mikilvæg.
Eitt af því mikilvægasta sem ég geri er að stunda heilbrigt líferni og það er í fyrsta sæti á mínum forgangslista. Næringaríkur matur, ég reyki ekki og það er afskaplega lítið áfengi í mínu lífi. Ég væri ekki að segja satt ef ég segði að ég drykki alls ekki en hægt er að telja skiptin á fingrum annarar handar síðastliðin þrjú ár.
Áfengi hefur nefnilega gríðarlega mikil áhrif á árangur okkar og líðan. Líkaminn er tvo til þrjá daga að jafna sig eftir hvert skipti og við verðum þreyttari fyrir vikið og úthaldsminni. Áfengi hefur áhrif á árangur æfinga okkar þessa daga og við erum útsettari fyrir vöðvabólgu og ýmsum kvillum.
Við eigum það líka á hættu að verða pirraðri og stressaðri dagana á eftir og það hefur áhrif á afköst okkar í vinnu og í samskiptum við annað fólk.
Ef við skoðum dæmið út frá tölum og reiknum með að það taki okkur tvo daga að jafna okkur í hvert skipti og að við neytum áfengis að meðaltali tvisvar sinnum í mánuði að þá gerir þetta á ársgrundvelli: 48 daga þar sem við erum ekki fyllilega með sjálfum okkur og við erum ekki að ná hámarksárangri á okkar sviði !
Það sama á við um aðra þæti s.s. óheilbrigt matarræði, reykingar, fjármál og fleira. Í dag höfum við tækifæri til þess að byrja á að firka okkur í rétta átt. Ég lofa því að ef þið fylgið markmiðum ykkar eftir og horfið til baka eftir eitt ár, á þennan upphafsstað sem þið eruð á í dag að þá eigið þið ekki eftir að sjá á eftir þeim tíma og þeim hlutum sem þið forgangsraðið heldur eigið þið eftir að fagna sigrinum.
Aftur á móti verður sárara að hugsa til baka eftir eitt ára og segja við sjálfan sig… bara ef ég hefði nú forgangsraðað.
Gleðilegan meistaramánuð !