Hrökkbrauð án hveitis
Ég rakst á þetta hrökkbrauð fyrir nokkrum mánuðum á síðunnu hennar Tinnu Bjargar og hef bakað það ósjaldan í hinum ýmsu útgáfum síðan þá. Ég borða það bæði hversdags og nota það sem nesti í ferðum þar sem það inniheldur ágætis orku. Ég bakaði það fyrir síðustu bakpokaferð sem ég fór í og tók með c.a. 3/4 af uppskriftinni og dugði það mér sem hádegismatur í 5 daga. Dásamlegt að geta borðað svona hollan og góðan mat þegar maður er á ferðinni. Með hrökkbrauðinu borðaði ég ýmist smurosta eða feitan ost í sneiðum.
Þetta er bæði fljótleg og einföld uppskrift og algjörlega þess virði að skella í eina uppskrift við og við. Það er lítið mál að leika sér með samsetninguna á fræjum, ostum og kryddum eftir því hvernig maður er stemmdur hverju sinni.
Að þessu sinni notaði ég eftirfarandi samsetningu:
2 dl möndlumjöl
1 dl graskersfræ
1 dl sólblómafræ
1 dl sesamfræ
1 dl hörfræ
1 lúka rifinn ostur
2 msk ólifuolía
1 egg
Og kryddaði blöduna með herbamar, óreganó og örlítið af paprikukryddi.
Þurrefnunum er blandað í skál og því næst er olíunni og egginu blandað saman við. Ég hnoða svo blöndunni saman með höndunum og skelli á bökunar pappír því næst er sett önnur örk af bökunarpappír ofan á blönduna og hún flött út með bökunarkefli.
Bakist á 180° í 15 mín.
Best er að skera hrökkbrauðið í sneiðar um leið og það kemur úr ofninum.