Everest Base Camp & Island peak
Hér er á ferðinni stórskemmtilegt ferðalag fyrir þá sem langar til þess að taka sín fyrstu skref í háfjallamennskunni eða prófa sig áfram í Himalaya fjallgarðinum.
Ferðalagið hefst á göngu upp í grunnbúðir Everest og óhætt er að segja að slík ferð lætur engan ósnortin. Þar blandast saman framandi menning, einstök gestrisni heimamanna og ólýsanleg náttúrufegurð Himalaya fjallgarðsins.
Við munum njóta persónulegrar leiðsagnar heimamannsins Dendi og fjölskyldu hans um Khumbu dalinn. Við munum gista á tehúsum, upplifa nepalska matargerð og í hverju skrefi uppá við munum við sjá og skynja nýja hluti.
Eftir gönguna upp í grunnbúðir munum við halda í átt að fjallinu sem við klífum undir leiðsögn þrautreyndra klifur Sherpa.
Island peak er 6189 m hátt og kallast Imja Tse á máli heimamanna. Fjallið er bæði fallegt, krefjandi og frábær áskorun.
Innifalið í verðinu er undirbúningsnámskeið fyrir fjallgönguna þar sem kennd eru tæknileg atriði, hvað ber að hafa í huga, þrjár æfingagöngur, fræðslukvöld og fyrirlestur um háfjallaveiki.
Dagskrá*:
Komið til Kathmandu (1,300m)
- Komið til Kathmandu (1,300m)
- Kathmandu (1300m): Skoðunarferð og undirbúningur.
- Flug til Lukla (2800m) og gengið til Phakding (2652m) 40 min flug, 3-4 klst ganga.
- Phakding til Namche Bazaar (3440m): 5-6 klst.
- Namche Bazaar (3440 m): Hæðaraðlögunarganga
- Namche Bazaar til Deboche (3870m) : 5- 6 klst.
- Tengboche til Dingboche (4200m): 4-5 klst
- Dingboche (4200m) – Hæðaraðlögunarganga
- Dingboche til Lobuche (4930m): 5-6 klst
- Lobuche til Gorak Shep (5170 m), gengið í Everest Base Camp (5364m )6-7 klst
- Gengið á útsýnisstaðinn Kala Patthar (5545m) og aftur til baka í Dingboche (4200m): 7-8 klst
- Dingboche til Chhukung (4730m)
- Chhukung upp í Island peak basecamp 5087m) 4 klst
- Island peak toppadagur (6189m) 12-14 klst. -gist í Chhukung.
- Chhukung til Namche Bazar (3440): 7-8 klst.
- Namche Bazar til Lukla (2800m) : 7-8 klst
- Flogið til Kathmandu, sameignlegur kvöldverður.
- Frjáls dagur í Kathmandu
Innifalið:
- Ferðir á milli hotels og flugvallar.
- Skoðunarferð og kvöldverður.
- Gisting á fjögura stjörnu hóteli í Kathmandu**.
- Gisting á Tehúsum í Khumbudalnum
- Gisting í tjöldum á fjallinu.
- Flug til og frá Lukla.
- Morgunverður í Kathmandu.
- Allar máltíðir í göngunni.
- Leiðsögumaður úr heimabyggð.
- Klifur Sherpar á Island peak.
- Klifurleyfi á fjallinu.
- Gisting í tjöldum á fjallinu.
- Þjónusta frá burðarmönnum/Jakuxum.
- Trekkingleyfi í þjóðgarðinn.
Ekki innifalið:
- Flug til og frá Kathmandu
- Ferðatryggingar + evacuation trygging
- Vegabréfsáritun
- Auka nætur á hóteli
- Uppihald í Kathmandu
- Þjórfé fyrir burðarmenn og leiðsögumenn af svæðinu
- Drykkir og gos í göngunni
- Auka snarl í göngunni
Verð: 490.000***
Dagsetningar: 7. -23. mars 2017
Sérstakt kynningarkvöld verður auglýst þar sem farið er yfir alla þætti.
*Birt með fyrirvara um breytingar
** Innifalið eru tvær nætur fyrir göngu og ein eftir göngu.
***ATH almenna ferðaskilmála