Carstensz Pyramid – Toppadagur!
Í dag, 11. nóvember um kl. 10:00 á staðartíma, komumst við á topp Carstensz Pyramid í góðu veðri.
Þetta var virkilega krefjandi dagur og mjög tæknileg leið enda var þetta um 12 tíma klettaklifur upp og niður á þessum summit degi. 5 af 6 manns í hópnum komust á toppinn, ein þurfti að hætta við sökum hæðarveiki. Við stoppuðum í um 40 mínútur á toppnum í ótrúlegu útsýni og tókum helling af myndum.
Núna erum við stödd í Base Camp þar sem við bíðum eftir burðarmönnum til að fara með okkur í gegnum frumskóginn. Við vonumst til að þeir komi seint á morgun og við áætlum að það muni taka um 4 daga.
Þangað til næst, bestu kveðjur frá Indónesíu.
———-
English version:
Today, November 11th, we reached the summit at Carstensz Pyramid.
It was a really challenging day and very technical – 12 hours of climbing up and down for the summit. 5 out of 6 people made it to the summit. We topped out at 10.00 am and luxuriated on the summit for 40 minutes taking in the amazing views and shooting a lot of photos.
We are now at the base camp and our porters are expected to arrive late tomorrow which means we get a rest day. Sleep-in and then we tackle phase two of the trip, the walk out and jungle.
Best regards from Indonesia,
Vilborg
Oh…..gott að þessi kafli er að baki og auðvitað er annar krefjandi framundan. Njóttu þessa alls ævintýrastelpan mín – þið eruð svo sem alverar ævintýrastelpur þú og Rósa Gréta frænka þín, hún er á heimleið eftir mikið ævintýraflakk og þá kom upp eldur í skipinu sem hún er farþegi á á leiðinni frá Færeyjum. Því er alveg óhætt að fullyrða að ævintýrin elta ykkur uppi.
Megi allar góðar vættir vera með þér í för og vaka yfir þér og vernda þig……og ferðafélaga þína.
Knús til þín.
Mamma.
flott þetta, eruð ekki einu sinni með vettlinga þarna 😉
Til hamingju með tindinn!! Gangi þér vel í gegnum frumskóginn.
Bestu kveðjur að vestan. Hadda