Gönguferð upp í Everest Base Camp.
Það er óhætt að segja að gönguferð upp í Everest Base Camp er ferðalag sem lætur engan ósnortin. Þar blandast saman framandi menning, einstök gestrisni heimamanna og ólýsanleg náttúrufegurð Himalaya fjallgarðsins.
Við munum njóta persónulegrar leiðsagnar heimamannsins Dendi og fjölskyldu hans um Khumbu dalinn. Við munum gista á tehúsum, upplifa nepalska matargerð og í hverju skrefi uppá við munum við sjá og skynja nýja hluti.
Dagskrá*:
- Komið til Kathmandu (1,300m)
- Kathmandu (1300m): Skoðunarferð og undirbúningur.
- Flug til Lukla (2800m) og gengið til Phakding (2652m) 40 min flug, 3-4 klst ganga.
- Phakding til Namche Bazaar (3440m): 5-6 klst.
- Namche Bazaar (3440 m): Hæðaraðlögunarganga
- Namche Bazaar til Deboche (3870m) : 5- 6 klst.
- Tengboche til Dingboche (4200m): 4-5 klst.
- Dingboche (4200m): Hæðaraðlögunarganga.
- Dingboche til Lobuche (4930m): 5-6 klst.
- Lobuche til Gorak Shep (5170 m), gengið í Everest Base Camp (5364m )6-7 klst.
- Gengið á útsýnisstaðinn Kala Patthar (5545m) og aftur til baka í Dingboche (4200m): 7-8 klst.
- Dingboche til Namche Bazar (3440): 7-8 klst.
- Namche Bazar til Lukla (2800m) : 7-8 klst.
- Flogið til Kathmandu, sameignlegur kvöldverður.
Innifalið:
- Ferðir á milli hotels og flugvallar.
- Skoðunarferð og kvöldverður.
- Gisting á fjögura stjörnu hóteli í Kathmandu**.
- Gisting á Tehúsum í Khumbudalnum
- Flug til og frá Lukla.
- Morgunverður í Kathmandu.
- Allar máltíðir í göngunni.
- Leiðsögumaður úr heimabyggð.
- Þjónusta frá burðarmönnum/Jakuxum.
- Trekkingleyfi í þjóðgarðinn.
Ekki innifalið:
- Flug til og frá Kathmandu
- Ferðatryggingar + evacuation trygging
- Vegabréfsáritun
- Auka nætur á hóteli
- Uppihald í Kathmandu
- Þjórfé fyrir burðarmenn og leiðsögumenn af svæðinu
- Drykkir og gos í göngunni
- Auka snarl í göngunni
Dagsetning: 26. mars – 8. apríl 2017
Verð: 375.000 ***
Sérstakt kynningarkvöld verður haldið þar sem farið verður yfir alla þætti.
*Birt með fyrirvara um breytingar
** Innifalið eru tvær nætur fyrir göngu og ein eftir göngu.
***ATH almenna ferðaskilmála