Img 3969
Img_3969
Img_3972
Img_3982
Img_4026
Img 3969 Img 3972 Img 3982 Img 4026

Gómsætir Fjallatoppar

Já ég veit!  Er gjörsamlega með það á heilanum að prófa mig áfram með nýjar gerðir af bitum. Fjallatopparnir hafa verið öðru hvoru á matseðlinum í fjallaferðum frá því í vor og mér finnast þeir alveg tryllt góðir – já svo er líka hellings orka í þeim líka. Stundum hafa þeir verið formaðir í fjallatoppa og skreyttir með kókos þegar unga kynslóðin á að njóta þeirra líka.

En þetta er það sem þarf til:

2 dl kinoa puffs
3 dl c- flakes (gluten & sykurlaust kornfleks)
100 gr muldar helsihnetur
50 gr hnetusmjör
250 gr gráfíkjur
150 gr sykurlaust  súkkulaði

 

Látið gráfíkjurnar liggja í bleyti í sjóðandi vatni í 5-7 mín og maukið þær svo í mixara og blandið hnetusmjörinu við. Setjið þurrefnin í skál og blandið maukinu saman og hnoðið saman. Mér finnst best að skipta deiginu upp í 30 gr bita, forma þá og setja á bökunarpappír. Skellið svo í frysti í c.a. 30 mín og á meðan er gott að bræða sykurlausa súkkulaðið yfir vatnsbaði. Þegar að bitarnir eru orðnir vel harðir og stökkir er tilvalið að húða þá með súkkulaðinu og setja svo aftur í frystinn þar til það er orðið hart.

Namm namm og verði ykkur að góðu!

 

This Post Has 2 Comments

    1. Þetta er ekki Kínóa heldur Kinoa puffs – það fæst í flestum stórverslunum. Þá er búið að gera einskonar morgunkorn úr kínóanu. Mjög gott í svona bita.

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *