Summit – vegferð að þínum árangri!
Summit – er spennandi ferðalag þar sem hver og einn þátttakandi vinnur í áttina að sínu markmiði. Námskeiðið er byggt upp á þremur fyrirlestrakvöldum og þátttakendur fá heimavinnu sem í hvert skipti færir þá nær sínu markmiði. Á milli fyrirlestranna er boðið upp á þrjá einstaklingstíma í markþjálfun sem styðja við hvern og einn á sinni persónulegu vegferð. Á þessum tíma munum við fjalla um ástríðu, markmið, vörður, hindranir, að fagna árangri, úthald í erfiðum aðstæðum, eftirfylgni og ýmislegt fleira.
Ef að þú kannast við eitthvað af eftirfarandi að þá á Summit erindi við þig:
- Áttu þér draum sem þú hefur ekki ennþá látið verða að veruleika?
- Stendurðu frammi fyrir áskorun sem að þú veist ekki hvernig þú átt að yfirstíga?
- Langar þig í breytingar í lífinu?
- Eða viltu einfaldega fá það besta út úr lífinu?
- Að ná meiri og markvissari árangri í leik og starfi?
Dagskrá:
9. nóv kl: 20 – Fyrirlestur og hvatning I
16, 17, 18 nóv. – einkatímar í markþjálfun
23. nóv kl: 20 – Fyrirlestur og hvatning II
29., 30., 1. des – einkatímar í markþjálfun
7. des kl: 20 – Fyrirlestur og hvatning III
3., 4., 5., jan. – einkatími í markþjálfun – eftirfylgni inn í árið.
Verð: 39.900
Skráning: https://docs.google.com/forms/d/1xAgtBI-jPKVcU7yqTqskLeQA7S9XB-u0ReZ_6TS99tI/edit
Leiðbeinandi er Vilborg Arna Gissurardóttir,
fjallgöngukona, fyrirlesari og markþjálfi.