Skíðaferð á Snæfellsjökul
Þegar maður býr á Íslandi er ekkert sem segir að skíðamennska þurfi að vera bundin við vetrarmánuðina. Um miðjan júlímánuð skelltum við Tommi okkur á Snæfellsjökul. Aðstæður og færi voru eins og best var á kosið miðað við árstíma og við skemmtum okkur ótrúlega vel.