17521791 10155191532103817 236344890 O
17521791_10155191532103817_236344890_o
17500581_10155191497333817_1602254977_o
17521769_10155191532003817_1511510942_o
17548946_10155191497278817_2082527063_o (1)
17506387_10155191531998817_1867841883_n
17547225_10155191532143817_668475521_o
17547382_10155191532093817_1370699729_o
17521786_10155191497218817_1910687120_o
17500011_10155191497398817_97213748_o
17521791 10155191532103817 236344890 O 17500581 10155191497333817 1602254977 O 17521769 10155191532003817 1511510942 O 17548946 10155191497278817 2082527063 O (1) 17506387 10155191531998817 1867841883 N 17547225 10155191532143817 668475521 O 17547382 10155191532093817 1370699729 O 17521786 10155191497218817 1910687120 O 17500011 10155191497398817 97213748 O

Everest Base Camp & Island Peak.

Það er stund milli stríða hér í Nepal. Við komum í gær niður til Katmandu eftir ævintýralega ferð um Khumbudalinn, upp í Everest Base Camp og svo klifum við fjallið Island Peak. Þetta er nokkuð langur túr sem endar á toppadegi sem getur verið ansi krefjandi. Við þurftum tvisvar að fresta toppadegi vegna veðurs og framan af var ansi kalt í ferðinni. Eftir að hafa legið yfir veðurspám var loksins komið „GÓ“ á okkur og fengum við þá einn fallegasta dag sem ég hef upplifað á fjöllum. Heiðskýrt og aðeins hlýrra en dagana á undan. Minni snjór var í leiðinni en ég hef séð áður og því þurftum við að þræða skriðjökullinn og „headwall-ið“ var stallað og á kafla þurfti að klífa yfir klettabelti. Stuttur en snarbrattur hryggur liggur síðan að toppnum sem rétt rúmaði okkur öll. Þvílíkur dagur! Við vorum pínu lúin þegar við náðum í grunnbúðir um kvöldið en vel sátt við afrakstur dagsins. Þar sem við þurftum að fresta toppadeginum að þá urðum við að taka þyrlu hluta af baka leiðinni og vá hvað það var gaman.
Núna er ég stödd í höfuðborginni og á fullu að útrétta. Næstu hópur kemur á morgun og þá höldum við aftur upp í fjöllin.
Langaði aðeins að sýna ykkur hvaða búnað ég var með í ferðinni. Þetta er svosem ekki tæmandi en smá innsýn.

17548946_10155191497278817_2082527063_o (1)Þegar það er ekki svo kalt elska ég að vera í þessu kombó. Primaloft vesti og léttur hlaupabolur  eru allgjör snilld til þess að halda góðum kjarna hita en samt vera næginlega léttur. Ég nota vesti mjög mikið bæði þegar það er heitt og kalt. Í hitanum finnst mér frábært að þurfa ekki að vera í heilli peysu og þegar það er kalt nota ég vesti gjarnan utan yfir peysur og innan undir skel til þess að halda góðum hita á öxlunum. Það hjálpar til að halda þeim slökum og maður er ekki jafn mikið að kryppa bakið. Mæli þá sérstaklega með vestum sem ná aðeins upp á hálsinn.

 

17500581_10155191497333817_1602254977_o

Ég algjörlega elska þennan létta dúnjakka.  Hann er með 800 fyllingu sem er frábært eins er teygjanlegt efni á hliðunum og innan á ermunum sem hefur tvo frábæra kosti, annars vegar að þá andar hann vel og hins vegar verður hreyfanleikinn mikill og jakkinn heftir mann hvergi. Þetta var sú flík sem ég notaði mest í ferðinni. Buxurnar sem ég er í eru úr nýju línunni og ég er virkilega ánægð með þær og ekki skemmir lúkkið á þeim fyrir.  Ullarvettlingarnir sem ég er í voru líka á höndunum upp á nánast hvern einasta dag.

 

17500011_10155191497398817_97213748_oHér er ég í primaloft jakka sem ég notaði mjög mikið þegar veðrið var að leika okkur grátt. Það snjóaði á okkur og þá var vissara að vera í flík sem heldur einangrun þó það sé raki. Ég er mjög ánægð með hreyfanleikann í jakkanum, hettan er góð og á ermunum er storff sem nær vel niður og hægt að setja þumalinn í gegnum.

Ég er með Ospray bakpoka sem ég algjörlega elska. Nafnið á honum er Temprest og hann er 30 L. Margir frábærir fídusar á honum m.a. sérstakt kerfi til þess að halda göngustöfunum á meðan maður er ekki að nota þá. Vasarnir fyrir brúsana eru djípir og góðir og sérstakt hólf er aftan á pokanum sem maður getur sett allskonar dót í án þess að þurfa að stoppa og opna allan pokann.

 

 

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *