Pakkað í poka
Um helgina hef ég hamast við að pakka ofan í poka ásamt tveimur góðum vinkonum mínum, Nínu og Láru. Allt þarf að vera nákvæmlega viktað, pokarnir lofttæmdir og þegar búið er að hnýta fyrir þarf að klippa pokaendann af. Allt er þetta gert til þess að spara hvert gramm í ferðinni – því eins og allir vita að þá gerir margt smátt eitt stórt. Öllum matnum er svo pakkað í “zip-lock” poka sem tekur eitt gallon. Pokarnir eru merktir með tölustöfunum 1-60 og einn poki er fyrir hvern dag. Allir pokarnir hafa í grunninn sama innihaldið en til tilbreytingar set ég stundum smá snakk, marsipan og fleira góðgæti sem dreyfist á pokana. Ég er mjög vanaföst þegar kemur að leiðangursmat. Ég vil hafa eitthvað sem ég þekki vel og veit að hentar fyrir mig. Þá skiptir líka máli að maður þurfi ekki að stoppa lengi til þess að næra sig. Ég stoppa að jafnaði á 75 mín fresti til þess að fá mér bita. Lykilatriði er að hugsa vel um sjálfan sig og passa vel upp á að blóðsykurinn falli aldrei því það getur tekið langan tíma að ná honum upp. Að sama skapi er mikilvægt að passa vel upp á að hafa húfu á kollinum, vinna með vettlinga o.s.frv.
Hér að neðan má sjá grunn matarlistann minn:
gr per dag | kcal | Samtals gr (60 dagar) | |
Múslí | 125 | 482,5 | 7500 |
Swiss miss | 25 | 103 | 1500 |
Hrökkbrauð | 40 | 136 | 2400 |
Súkkulaðistykki 1 (Snickers) | 51 | 448 | 3060 |
Súkkulaðistykki 2 (Mars) | 51 | 448 | 3060 |
Súkkulaðistykki 3 (Bounty) | 51 | 448 | 3060 |
Súkkulaðistykki 4 (Twix) | 51 | 448 | 3060 |
Smjör | 50 | 369 | 3000 |
Harðfiskur | 70 | 223 | 4200 |
Súkkulaðikex | 50 | 243 | 3000 |
Maryland | 100 | 504 | 6000 |
SS-Ölpylsa | 25 | 201 | 1500 |
Hentumix | 100 | 560 | 6000 |
kaffi + þurrmjólk | 20 | 1200 | |
Þurrmatur | 150 | 590 | 9000 |
Te | 40 | 2400 | |
Sykurmolar 7 stk | 21 | 70 | 1260 |
Orkudrykkur (Viper Active frá Hreysti) | 60 | 232 | 3600 |
Samtals | 1080 | 5505,5 | 64800 |
Það er bara lúxus hjá stelpunni!
sæl, þarft held ég að deila í grammafjöldann með 100?
Enginn hammari?! 🙂
Ekki gleyma heyi handa Lamba leiðangursstjóra.