13407083 713822825424634 7791072993299161423 N
13407083_713822825424634_7791072993299161423_n
14390940_768476339959282_6385756205533395060_n
14199605_10154421740072114_7795784748122799358_n
13407083 713822825424634 7791072993299161423 N 14390940 768476339959282 6385756205533395060 N 14199605 10154421740072114 7795784748122799358 N

Útivistarnámskeið í Náttúru-Nóvember!

Ef þig langar til þess að stunda fjallgöngur en veist ekki alveg hvar á að byrja að þá er þetta námskeið fyrir þig. Göngurnar eru í nágrenni Reykjavíkur og í hverri göngu erum við að vinna með ákveðin þemu sem munu auka ánægju af útivist og auðvelda áframhaldið yfir í lengri ferðir. Námskeiðið er einnig mjög heppilegt fyrir þá sem vilja stunda fjallgöngur með hópum.
Sérstakt fræðslukvöld verður 15. nóv í verslun 66°Norður þar sem farið er yfir helstu þætti sem gott er að kunna skil á í fjallgöngum s.s. val á búnaði, næring, hvar við finnum upplýsingar um leiðir, þjálfun & úthald og fleira. Eftir fyrirlesturinn býðst þátttakendum að versla útivistarfatnað hjá 66°Norður og Lasportiva gönguskó á sérstökum kjörum.

Dagskrá:

  • 8. Nóv. – Mosfell.
  • 12. Nóv – Helgafell í Hafnarfirði
  • 15. nóv – Fræðslukvöld
  • 19. nóv – Grímmannssfell
  • 22. nóv – Búrfellsgjá
  • 26. nóv – Vífilsfell
  • 29. nóv – Úlfarsfell
  • 3. des – Móskarðshnúkar

 

Göngurnar byrja kl 18.00. á þriðjudögumv og kl: 9.30 á laugardögum.

Saman munum við byrja rólega og smá saman færa okkur yfir á hærri fjöll. Við byrjum á Mosfelli sem er ákaflega góður upphafspunktur. Við fjöllum um hvernig nýta má útivist sem líkamsrækt ásamt því að skoða saman hvernig maður byggir sig upp í fjallgöngur.Við æfum tæknileg atriði s.s. ganga við mismunandi aðstæður, hvernig á að nota göngustafi, stilla bakpokana, um öndun og púls ásamt því að skoða sniðug öpp og hvernig maður les úr tölfræði. Sérstaklega er svo fjallað um næringu og hvernig maður nær sem bestu “recovery” eftir göngur.

Verð: 17.500 á mann – ef pör koma saman greiðir annar makinn hálft gjald.

Leiðbeinendur eru: Vilborg Arna Gissurardóttir og Tomasz Þór Veruson

Skráning: https://goo.gl/forms/PpRaPz7ye0Ioz4lC2

 

This Post Has One Comment

  1. Góðan dag
    Mig langaði að vita hvort það væri afsláttur þegar maður er að vinna vaktavinnu og kemst bara annan hvorn þriðjudag og aðra hvora helgi þvi eg hef mikinn áhuga a þessu hjá ykkur
    Kveðja Bryndís

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *